Hver kannast ekki við það að hafa trassað að hengja upp þetta eina ljós sem vantaði í íbúðina, eða að kaupa þetta flotta í IKEA og koma sér bara hreinlega ekki í það að hengja ljósið upp? Mörgum vex það í augum að klára þetta verkefni: “Á hverju á ég að standa?”, “Ég veit ekkert hvaða verkfæri þarf?”, “Hvað ef ég fær raflost?” og bara allar hinar hugsanirnar fljúga svo auðveldlega í gegnum hausinn á manni. En ég er hér til að segja ykkur: Þið getið hengt upp ljós sjálf. Þið megið auðvitað hringja í mig og fá mig til að gera þetta fyrir ykkur, en væri ekki bara miklu betra að finna gleðina í því að geta hengt ljós upp sjálf?
Hérna eru nokkur atriði sem er gott að hafa í huga þegar hengja á upp ljós 1. Tryggið að búið sé að taka rafmagnið af dósinni. Við erum miklir stuðningsmenn stuðsins, bara ekki svona rafstuðs 2. Fjárfestið í góðum verkfærum, það skiptir sköpum. Veljið ykkur t.d. skrúfjárn með plasthandfangi og úr góðu járni. Það er ekkert verra en að þurfa fara í Byko eftir einu stjörnujárni. 3. Notið stiga!! ekki eldhúsborðið. 4. Veljið ykkur góðan handlangara þið viljið ekki þurfa að festast í nýja stiganum með aðra höndina fasta við ljósakrónuna og hina í með vitlaust skrúfjárn.
0 Comments
|